Frelsisvísitalan 2021

29.03.2022

Í nýrri skýrslu Fraser Institute eru birtar niðurstöður alþjóðlegrar samanburðarrannsóknar á efnahagslegu frelsi í heiminum. Þar kemur fram að Ísland er í 23. sæti á lista 165 lands sem rannsóknin nær til, en var í 29. sæti árið 2020. Staða Íslands helgast einkum af sterkum lagalegum og pólitískum innviðum, ríkri vernd eignarréttar og nokkuð íþyngjandi regluverki í viðskiptaumhverfi fyrirtækja og á vinnumarkaði sé borið saman við önnur lönd.  

Mest efnahagslegt frelsi ríkir í Hong Kong samkvæmt skýrslunni, þar á eftir kemur Singapúr, svo Nýja-Sjáland og Sviss. Með sambærilega einkunn í sætum 5-9 eru svo Georgia, Bandaríkin, Litháen, Írland og Ástralía, og Danmörk er í því 10. Íslendingar sitja sem fyrr segir í 23. sæti. Af öðrum Norðurlandaþjóðum eru Finnar í 21. sæti, en Svíar og Norðmenn deila því 37. sætinu. 

Þegar litið er til stærstu hagkerfanna eru helstu niðurstöður: Japan í 18. sæti, Þýskaland er í 22. sæti, Ítalía í 47. sæti, Frakkland í 53. sæti, Mexíkó í 75. Sæti, Rússland í 100. sæti, Indland í 108. sæti, Brasilía í 109. sæti og Kína í 116. sæti,. Botn listans verma svo Líbía, Súdan og Venezúela. 
 
Hornsteinar efnahagslegs frelsis 
Hornsteinar efnahagslegs frelsis eru samkvæmt skýrslunni valfrelsi einstaklinga, viðskiptafrelsi, samkeppnisfrelsi, sterkir lagalegir innviðir, aðgangur að traustum gjaldmiðli og vernd eignarréttar. Vísitala atvinnufrelsis (index of economic freedom) ræðst af fimm meginsvidum: 

  1. Umfangi opinbers reksturs, skatta og fyrirtækja. 
  1. Lagalegu umhverfi og friðhelgi eignarréttar. 
  1. Aðgangi að traustum peningum. 
  1. Frelsi til alþjóðlegra viðskipta. 
  1. Reglubyrði á fjármagns- og vinnumarkaði og um fyrirtæki. 

Innan þessara fimm meginsviða eru síðan 26 þættir, en sumir þeirra eru síðan aðgreindir í enn frekari undirþætti. Í heildina er vísitalan því sett saman úr 44 aðgreindum breytum, og hvert svið, þáttur og undirþáttur eru síðan mælt á kvarða 0 til 10 sem hvílir á dreifingu undirliggjandi gagna. Síðan eru undirþættirnir vegnir i meðaltöl, og slíkt hið sama gildir um þættina og að lokum um hin fimm meginsvið, og til verður gildi fyrir hvert land. Löndum er síðan raðað eftir því í hvaða mæli þau fylgja stefnu sem leiðir til efnahagslegs frelsis.  

Einkunnir Íslands í lykilflokkum eru eftirfarandi: (á skalanum 1-10 þar sem hærri tala bendir til meira efnahagslegs frelsis.) 

  • Umfang hins opinbera: Einkunnin lækkar í 6,12 úr 6,21 frá fyrra ári. Ísland er í 116. sæti í þessum flokki. 
  • Lagaumhverfi og vernd eignarréttar: Einkunnin er 8,45, óbreytt frá fyrra ári. Ísland situr í 6. sæti í þessum flokki. 
  • Aðgangur að traustum gjaldmiðli: Einkunnin hækkar úr 9,55 í 9,37 frá fyrra ári. Ísland situr í 31. sæti í þessum flokki. 
  • Frelsi til alþjóðaviðskipta: Einkunnin hækkar í 7,73 úr 7,48. Ísland situr í 70. sæti í þessum málaflokki.  
  • Reglubyrði: Einkunnin lækkar í 7,66 úr 7,67 frá fyrra ári. Ísland situr í 52. sæti í þessum flokki. (Undirflokkar: fjármálamarkaður, vinnumarkaður og viðskiptaumhverfi) 

Þegar staða Íslands er metin og reynt að leggja dóm á hvar umbóta er þörf, verður annars vegar að líta til einkunna og hins vegar til alþjóðlegs samanburðar. Lágar einkunnir benda til mikilla takmarkana á efnahagslegt frelsi, sem ástæða er til að draga úr. Slæm útkoma í alþjóðlegum samanburði þar sem einkunnir eru samt ekki ýkja lágar bendir til þess unnt sé að gera betur.  

Þá verður líka að hafa í huga að um er að ræða samanburðarhæf gögn svo ekki er um allra nýjustu upplýsingar að ræða. Nýjustu samanburðarhæfu gögnin eru frá árinu 2019 og er miðað við þau.  

Það er einna brýnast fyrir Íslendinga að ráðast í umbætur á sviði alþjóðaviðskipta ef marka má niðurstöður skýrslunnar. Hér vega tollar, vörugjöld og önnur innflutningshöft nokkuð, en einnig takmarkanir á erlendum fjárfestingum hér á landi. Leiðir til að efla utanríkisviðskipti sem hlutfall af landsframleiðslu myndu ennfremur bæta stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði, en það sem meira er um vert, bæta hag landsmanna. Landið er enn of lokað. Umsvif hins opinbera eru töluvert áhyggjuefni og hlutur opinberra aðila í landsframleiðslunni. Í þessum tveimur flokkum er einkunn Íslendinga lág. Eins og áður er getið eru standa Íslendingar illa í alþjóðlegum samanburði að því er snertir aðgang að traustum gjaldmiðli. Enda þótt að einkunnin sé ekki lág, er svigrúm til umbóta. Líklegt verður að teljast að staðan hafi nokkuð versnað að þessu leyti á síðustu tveimur árum, eins og áður er nefnt. 
 
Meira efnahagslegt frelsi eykur líkur á betri lífskjörum 
Rannsóknir benda til að einstaklingar sem búa við mikið efnahagslegt frelsi, njóti almennt betri lífskjara, meira persónufrelsis og lifi lengur. Hér er um að ræða mælingar á grundvallaratriðum sem frjálsar og velmegandi þjóðir byggja samfélög sín á. Þegar litið er á þau lönd sem versta einkunn hljóta í skýrslunni kemur í ljós að þau eiga sameiginlegt að vernd eignarréttar og sjálfstæði dómstóla er lítt eða ekki til staðar. Einstaklingurinn má sín því lítils og samkvæmt öllum opinberum aðgengilegum rannsóknargögnum er tæplega hægt að tala um velsæld í þessum löndum. 

Um Frelsisvísitöluna 
Sem fyrr greinir nær rannsóknin til 165 lands. Miðað er við upplýsingar frá árinu 2019, en frá því ári eru nýjustu samanburðarhæfu gögnin. Í skýrslunni eru jafnframt uppfærðar niðurstöður eldri skýrslna í tilvikum þar sem gögnin hafa verið tekin til endurskoðunar. Skýrslunni ber að taka með þessum fyrirvara, sem fylgir einatt almennar samanburðarrannsóknum af þessu tagi. Hins vegar veitir þessi skýrsla, sem er ein sú vandaðasta sinnar tegundar, góðar vísbendingar um efnahagslegt frelsi hér á landi í alþjóðlegum samanburði og þróun þess á undanförnum áratugum. 

Skýrsluna í heild sinni má nálgast hér á rafrænu formi

Ársskýrslan er unnin undir stjórn Fraser stofnunarinnar í Kanada í samstarfi sjálfstæðra rannsóknar- og fræðslustofnana í um í 100 löndum sem tengjast böndum í gegnum Samstarfsnet um efnahagslegt frelsi. RSE er aðili að samstarfsnetinu.