Í tilefni af 300 ára afmæli Adams Smiths boðar Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, í samstarfi við Hagfræðideild og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, til málstofu miðvikudaginn 6. desember kl. 16:20-17:20 í Hátíðasal Háskóla Íslands. Þar mun prófessor Craig Smith flytja erindi um
Adam Smith og hagfræði umbóta og framfara
Í erindi sínu mun prófessor Craig Smith fjalla um grundvallarhugmynd skosku upplýsingarinnar um efnahagsþróun. Þá mun hann ræða það hver tengslin eru milli hlutverka stjórnvalda og aukinnar auðlegðar þjóðanna í hugmyndum Adams Smiths. Prófessor Craig Smith ber saman tvær ólíkar kenningar um efnahagsþróun sem báðar eiga rætur að rekja til Skotlands átjándu aldar. Önnur byggir á hugmynd James Steuart, forvera Adams Smith, hugmynd sem sá síðarnefndi hafnaði. Hin byggir á hugmyndum Adams Smith um umbætur og framfarir.
Craig Smith er prófessor í sögu stjórnmálahugmynda við félags- og stjórnmálavísindasvið Glasgow-háskóla. Rannsóknir hans beinast að siðferðis- og stjórnmálakenningum skosku upplýsingarinnar. Hann er höfundur ritanna: Adam Smith's Political Philosophy: the invisible hand and spontaneous order; Adam Ferguson and the Idea of Civil Society: moral science in the Scottich Enlightenment og Adam Smith. Hann ritstýrði, ásamt öðrum, The Oxford Handbook of Adam Smith og The Cambridge Companion to the Scottish Enlightenment. Þá er hann einnig nýr ritstjóri The Adam Smith Review.
Fyrirlestur prófessors Craigs Smiths er hluti af fyrirlestraröðinni „Smith around the world“ í tilefni 300 ára afmælis Adams Smiths.
Boðið verður upp á léttar veitingar að málstofu lokinni.