
Snemma árs 2025 ákváðu almannasamtökin SFA (Samgöngur fyrir alla) og RSE (Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál) að beita sér fyrir að gerð yrði skipuleg athugun á hagkvæmni mismunandi valkosta í samgönguframkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu. Til að vinna að þessari athugun voru fengnir þeir Elías B. Elíasson verkfræðingur, Ragnar Árnason prófessor emeritus og Þórarinn Hjaltason samgönguverkfræðingur. Fyrsta áfanga þessa verkefnis er nú lokið og gerð grein fyrir helstu niðurstöðum þess í eftirfarandi skýrslu.
