Utanríkisverslun Íslands: Raunverulega mynd

06.08.2026

Ísland er fámennt ríki með tiltölulega fábrotið hagkerfi. Utanríkisviðskipti eru afar mikilvæg stoðundir hagsæld landsmanna. Því skiptir miklu að hafa sem skýrasta mynd af því hverjar helstu viðskiptaþjóðir Íslands eru og hver hlutdeild þeirra er í utanríkisverslun landsmanna.

Hagstofa Íslands tekur saman gögn um utanríkisverslun Íslands og birtir um þau töluleg yfirlit. Í þessum yfirlitum er útflutningur iðulega flokkaður eftir fyrsta löndunarstað erlendis en ekki endanlegum áfangastað. Yfirlit Hagstofunnar um útflutning eftir löndum endurspegla því að verulegu leyti flutningsleiðir útflutningsins frá Íslandi en ekki hvaða land kaupir vöruna. Þetta hefur stundum leitt til misskilnings um það hverjar raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands eru og hvar landfræðilegir viðskiptahagsmunir Íslands liggja.

Í þessari skýrslu hafa Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason hjá Samtökum skattgreiðendafarið yfir gögn úr innlendum og erlendum gagnabönkum sem lúta að utanríkisviðskiptum Íslands í því skyni að draga upp skýrari mynd af því hverjar helstu viðskiptaþjóðir Íslands eru og hvaða gjaldmiðlar eru notaðir í þeim viðskiptum.

Skýrslan er aðgengileg hér fyrir neðan